Náttúra & Núvitund
Náttúra & Núvitund
Kvenna JÓGAFERÐ TIL Ítalíu
- Sabina, Ítalía
25. maí - 30. maí 2025
Skelltu þér á vit ævintýranna og komdu með í jógaferð til Ítalíu næsta vor. Náttúra og Núvitund er jógaferð með hinni fullkomnu blöndu af ævintýri og afslöppun. Nærum líkama og sál með daglegu jóga, skemmtilegum göngum, gómsætum grænmetismat og frábærum félagskap – algjör draumur!
Ferðinni er heitið í Sabina hæðir Ítalíu, rétt utan við Róm. Svæðið er algjör náttúruperla, ekkert nema grænar hlíðar, brattir dalir, ólífulundir, miðalda bæir, kastalar og vínekrur. Algjörlega óspillt ítölsk sveit og við munum gista í hjarta þess. Húsið okkar er klassískt ítalskt sveitahús umkringt náttúru, með jógapalli með útsýni yfir hlíðarnar og sundlaug umkringd trjám.
Snemmsumar er fullkominn tími til að skella sér til Ítalíu, í lok maí í Sabina eru allar líkur eru á hlýjum sólardögum og mildum kvöldum.
Í stuttu máli: 5 nætur, 6 dagar. Daglegt jóga og hugleiðsla, bæði jógaflæði og yin jóga. Keramik workshop. Ferð á vínekru ásamt vínsmökkun og mat. Ævintýraleg ganga. Gómsætur grænmetismatur. Nægur tími til að slaka á og njóta.
hreyfum líkamann
gisting
Húsið okkar er hefbundið ítalskt sveitahús umkringt náttúru. Staðsett í gróskumiklum dal með stórkostlegu útsýni, húsið hefur verið uppgert sérstaklega fyrir jógaferðir. Á lóðinni er alls kyns lítil skot og pallar, fullkomnir til að tengjast náttúrunni, kveikja á sköpunargleðinni og finna smá kyrrð og ró.
Í húsinu er aðstaða fyrir jóga bæði innan og utanhús. Útisvæðið er sérbyggður jógapallur, með trjám öðru megin og stórkostlegu útsýni hinum megin. Algjör náttúruperla! Einnig er kósý rými inni í húsinu þar sem við getum náð algerri slökun.
Húsið státar af fjölmörgum notalegum svæðum tilvalin fyrir afslöppun, bæði inni og úti. Einnig státar húsið af fallegri sundlaug umkringd trjám og notalegri aðstöðu til að setjast saman og snæða dýrindismat al fresco.
Svefnherbergin eru einföld og notaleg, öll hönnuð til að hlúa að og hvetja ró, vandlega skreytt með list frá listamönnum bæði nær og fjær. Öll herbergin eru twin herbergi og eru flest þeirra með einkabaðherbergi, þó eru nokkur sem deila baðherbergi.
nærum sálina
Upplifun
Jógaferðin Náttúra og Núvitund er að sjálfsögðu stútfull af bæði náttúru og núvitund! Við hefjum hvern einasta dag á hugleiðslu og skapandi jógaflæði sem hitar upp líkamann, styrkir hann og teygir. Svo nærum við okkur með gómsætum dögurð útbúinn af matreiðslusnillingum frá héraðinu. Restina af deginum fer svo í afslöppun, skemmtilegheit eða ævintýri. Fyrir matinn rúllum við aftur út jógamottunni fyrir afslappandi yin og djúpslökun áður en við setjumst niður og snæðum ljúffengan kvöldmat.
Dagskrá - Náttúra & Núvitund jógaferð
Allir dagskrárliðir valfrjálsir. Athugið að dagskrá gæti breyst.
sunnudagur
16:00 Koma
17:30 Mjúkt jógaflæði
19:30 Kvöldverður og kvöldstund
mánudagur
08:30 Te og slökun
09:00 Jógaflæði og hugleiðsla
10:30 Dögurður
12:00 Keramik workshop
17:30 Yin jóga og djúpslökun
19:00 Kvöldverður
þriðjudagur
08:30 Te og slökun
09:00 Jógaflæði og hugleiðsla
10:30 Dögurður
11:30 Fjallganga
19:00 Kvöldverður
21:00 Í háttinn jóga
miðvikudagur
08:30 Te og slökun
09:00 Jógaflæði og hugleiðsla
10:30 Dögurður
11:30 Frjáls tími
16:30 Ferð í vínsmökkun og mat
fimmtudagur
08:30 Te og slökun
09:00 Jógaflæði og hugleiðsla
10:30 Dögurður
11:30 Frjáls tími
17:30 Yin jóga og djúpslökun
19:30 Kvöldverður og lokahóf
föstudagur
08:00 Jógaflæði og hugleiðsla
09:30 Morgunmatur
11:00 Check-out
JÓGAÐ
Jógatímarnir í ferðinni miðast við bæði byrjendur jafnt sem lengra komna. Á hverjum morgni verður skapandi og fjölbreytt jógaflæði þar sem við hitum upp líkamann, styrkjum og teygjum. Um eftirmiðdaginn er svo slakandi yin jóga sem eykur liðleika, nærir bandvefi líkamans, eflir blóðflæðið og róar taugakerfið. Í lokin endurnærum við okkur með slakandi nidra sem er leidd djúpslökun. Eitt kvöldið munum við taka Í háttinn jóga eftir mat, þar sem við slökum extra vel á með rólegum teygjum og djúpslökun og rúllum svo beint upp í rúm.
Göngur
Húsið okkar er staðsett í gróskumiklum dal umkringt gullfallegri náttúru með lækjum og trjám. Við munum að sjálfsögðu skoða þessa stórbrotnu náttúru með góðri göngu í nærumhverfi okkar. Við tökum eina góða göngu saman sem verður hæfilega löng. Við munum skoða hæðirnar, dalina og lækina í kringum okkur og jafnvel heimsækja eitt af miðalda þorpunum í nágrenninu.
Afþreying
Í ferðinni verður nóg af afþreyingu, en einnig nægur tími til að slaka á og njóta. Ásamt jóga og göngu munum við einning fara á keramik workshop með listakonu úr nágrenninu þar sem við munum búa til okkar eigin handgerða muni. Svo munum við einn daginn skella okkur á vínekru í vínsmökkun og mat, enda erum við á Ítalíu og maður þarf að nýta sér það!
Maturinn
Þetta væri nú ekki góð jógferð ef það er ekki góður matur! Í ferðinni verður boðið upp á hollan og góðan grænmetismat útbúinn úr ferskum, árstíðarbundnum afurðum. Á hverjum morgni munum við gæða okkur á gómsætum dögurð áður en við hefjum ævintýri dagsins. Á kvöldin verður svo dýrindis kvöldmatarhlaðborð ásamt eftirrétt. Einnig er hægt að næla sér í ferska ávexti, hnetur og te hvenær sem er dagsins.
slökum á
Upplýsingar
Í ferðinni er innifalin alls kyns dásemd. Fullt af jóga, ævintýrum og dýrindis mat. Því er um að gera að dekra aðeins við sig og leyfa sér smá náttúru og núvitund – þú átt það svo sannarlega skilið!
Innifalið
- Gisting í 5 nætur
- Dögurður og kvöldverður alla daga*
- Te, hnetur og ávextir til að snarla á
- Níu jógatímar
- Ævintýraleg ganga
- Keramik workshop
- Ferð á vínekru, vínsmökkun og matur
- Nægur tími til að slaka á, synda, lesa og njóta
- Handvalin gjöf
*Á komudag er aðeins kvöldmatur og á farardag er aðeins morgunmatur
Annar kostnaður
- Flug
- Ferðalag til Sabina*
- Áfengi og aðrir drykkir
- Matur annað en það sem boðið er upp á í húsinu
*Ef næg eftirspurn munum við panta litla rútu frá Rómar til Sabina
Flug
Best er að fljúga til Rómar. Flug í boði með bæði Icelandair og Wizz Air.
Verð
- Twin herbergi (tveggja manna) með ensuite baðherbergi: 249,000 isk á mann (EITT HERBERGI LAUST)
- Twin herbergi (tveggja manna) með sameiginlegu baðherbergi*: 239,000 isk á mann* (TVÖ HERBERGI LAUS)
Staðfestingargjald við bókun er 50,000 isk og eftirstandandi þarf að greiðast fyrir 1. mars 2025. Athugið að hægt er að dreifa greiðslum.
Athugið að hópur verður að hámarki 16 konur (að meðtöldum fararstjóra og kennara).
*Þrjú svefnherbergi deila tveimur baðherbergjum
Bókanir
Bókanir fara í gegnum saeunn@sajarutyoga.com
Skilmálar
Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. Ef afbókað er með minna en 12 vikna fyrirvara er því miður ekki hægt að fá endurgreitt en hægt er að yfirfæra bókun á annað nafn.
Bendum einnig á að ferðatrygging er á ábyrgð einstaklinga.
njótum stundarinn
Jógakennarinn
Sæunn Rut er jógakennari (RYT500), lýðheilsufræðingur og algjört náttúrubarn sem elskar fátt meira en að blanda saman heilsu, útivist og jóga. Hún hefur farið með ýmsa hópa í jóga og heilsuferðir bæði innanlands og erlendis og leiðir reglulega workshop þar sem hún blandar saman jóga, heilsu og vísindum. Hún leggur áherslu á heilbrigðan og öfgalausan lífstíl og vill hjálpa fólki að finna gott jafnvægi milli styrkleika og teygjanleika, áreynslu og slökun.
Sæunn leggur áherslu á að hlusta á líkamann og taka eftir hugarástandi okkar að hverju sinni og að hreyfa sig í samræmi við það. Hún hefur brennandi áhuga á að yfirfæra jógalærdóminn yfir í daglegt líf. Hún veit að lífið gerist utan jógastúdíósins og vill hún hjálpa þér að gera sem mest úr því lífi. Sæunn nýtir bakgrunn sinn í dansi ásamt þekkingu sinni á mannslíkamanum og huganum til þess að búa til jógatíma sem eru fjölbreyttir og skapandi, jógatíma sem miða að því að finna jafnvægi – á jógamottunni sem og í lífinu.
Ef þú vilt prufa tíma hjá Sæunni þá er hún með fullt af ókeypis tímum á YouTube.
Náttúra & Núvitund
sveitasæla, jóga og afslöppun í ítalskri náttúruperlu
Follow me @sajarut for inspiration, latest news, class updates and general shenanigans.